Ísafjörður um aldamót. Sjávarútvegur í deiglunni |
There are no translations available. BA ritgerð Björns Ásgeirs Björnssonar frá árinu 1997 fjallar um sjávarútveg og mannlíf á Ísafirði um aldamótin. Ræðir hann um íslenskt samfélag og breytingar á atvinnuháttum við lok 19. aldar og á öndverðri 20. öld. Einnig fjallar hann um aukin umsvif og mikilvægi sjávarútvegarins í annars stöðnuðu landbúnaðarsamfélagi, og vélvæðingu báta sem gjörbreytti bæði útgerðinni og samfélaginu öllu. |