headBanner4.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Home
  • About
  • Fishernet Country Reports
  • Fishernet Stories
  • Community
  • Coastal Culture
  • Boats & ships
  • Fishing
  • Marine Mammals
  • Greenland & Faroe Islands
  • The coast
  • Books and magazines
  • Conference
  • News & Events
  • Interesting projects
  • Material from mass media
  • Interesting links
  • All tags
  • Webtree
  • Login
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Home Interesting projects Samstarfsverkefni Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði við Bátaverndarmiðstöð Norður-Noregs í Gratangen um menntun bátasmiða
Samstarfsverkefni Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði við Bátaverndarmiðstöð Norður-Noregs í Gratangen um menntun bátasmiða
There are no translations available.

Verkefni_gamlislippurinnVerkefnið hófst síðla árs 2007. Markmiðið er að gamli Slippurinn á Siglufirði öðlist nýtt líf og að þar verði hægt að halda námskeið í smíði báta. Tveir smiðir fóru til Gratangen á haustdögum 2008 og smíðuðu bát undir leiðsögn heimamanna. Auk þess kynntu þeir sér bátavernd í Noregi og tóku þátt í ráðstefnu um samíska báta. Í júlí 2009 verður annað námskeið á Siglufirði undir leiðsögn yfirskipasmiðsins í Gratangen.

Myndin er tekin í október 2007 þegar norður-norskir bátasérfræðingar komu í heimsókn í Slippinn og sátu undirbúningsfund með heimamönnum.


Gamli Slippurinn á Siglufirði - staður nýrra tækifæra

• Menntun bátasmiða - endurheimt fornrar þekkingar á smíði tréskipa.
• Lögð áhersla á smíði lítilla árabáta með segli - hefðbundnar bátagerðir, efnisnotkun og vinnubrögð.
• Vettvangur fræðslu og námskeiða með samstarfi við menntastofnanir. Verkefni_gamlislippurinn_1
• Hafin raðsmíði eða sérsmíði slíkra báta sem hæfðu til sölu á markaði. Hinn íslenski bátur til siglinga og veiða á sjó og vötnum.
• Þar fari fram viðgerðir gamalla báta í eigu einstaklinga eða safna.

Slippurinn - gamla bátasmíðastöðin - verði kjarninn í nýrri deild Síldarminjasafnsins þar sem lögð verði áhersla á sögu íslenskrar

Verkefni_gamlislippurinn_2Gamla skipasmíðastöðin hefur staðið að mestu ónotuð í allmörg ár. Þar eru öll tæki til reiðu, þ.m.t. gamlar vinnuvélar og vinnurými er gott - allt er þar tilbúið til nýrrar starfsemi.

Bátasmíðaskemman var byggð 1934 og mun dráttarbrautin vera að stofni til frá sama tíma. Um áratugi var Slippurinn starfræktur sem skipasmíðastöð og þar fóru fram viðgerðir smárra og meðalstórra skipa fram yfir 1990.

Sjá frétt um verkefnið hér.Verkefni_gamlislippurinn_3

 

 


 

 

 

 
fishernet.is | Stefansson | http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact