Fagur, fagur fiskur í sjó. Hugmyndir Íslendinga um viðskipti með aflakvóta |
Hér er um að ræða MA ritgerð Óðins Gunnars Óðinssonar frá árinu 1997 um hugmyndir Íslendinga um viðskipti með aflakvóta og er viðfangsefni hennar í meginþáttum tvíþætt. Annars vegar að sýna hvernig Íslendingar töluðu sig inn í aflamarkskerfi í fiskveiðum og hvernig þær breytingar sem fylgdu í kjölfarið koma fram í umræðum um viðskipti með fiskveiðikvóta. Hins vegar er leitast við að varpa ljósi á breytingarferli sem er samofið sögulegum og félagslegum þáttum. Þetta ferli snýst ekki aðeins um form eða tæknilega útfærslu fiskveiðistjórnunarkerfisins á Íslandi eða þá vistfræðilegu og hagrænu þætti sem mikilvægar stofnanir þjóðfélagsins hafa beint umræðunni um fiskveiðistjórnun í, það snýst ekki síður um þekkingarfræðilegar breytingar, reynslu, siðferði og vald til þess að móta leikreglur. Fagur, fagur fiskur í sjó. Hugmyndir Íslendinga um viðskipti með aflakvóta. Bls.: (1-49) (50-99) (100-149) (150-199) (200-219) |