Í grein sem birtist í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja árið 2001 fjallaði Gísli Pálsson um áhrif sjóslysa sem "hvíldu á árum áður eins og þungur skuggi yfir flestum sjávarplássum við Norður-Atlantshaf". Með föður sínum rifjar Gísli upp atburði í tengslum við Gand NK sem fórst haustið 1942 og Langanes NK sem sökk við Eyjar árið 1959 og þau áhrif sem þessir atburðir tveir höfðu á þá sem þeim tengdust með einum eða öðrum hætti. "Hafið heggur sín skörð, tortímir og sundrar vinum og fjölskyldum, en það er jafnframt skapandi þáttur í mannheimi sem tengir fólk nánum böndum, oft með óvæntum hætti."
Síðasti róðurinn
|