Hvalur klukkan þrjú!!! Gleði og vonbrigði í íslenskri hvalaskoðun |
There are no translations available. Elva Guðmundsdóttir er í ritgerð sinni frá árinu 2001 með mannfræðilega umfjöllun um fólk sem vinnur við hvalaskoðun. Fjallar hún um hvernig það upplifir sig við vinnu sína, hvernig það sér sjálft sig og hvernig það upplifir þau átök sem hafa verið um hvali hér á landi. Einnig fjallar hún almennt um upplifun Íslendinga af umhverfi sínu, viðhorfi þeirra til dýra og hvernig þetta allt endurspeglast í hvalveiðideilunni. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að tengsl fólksins við náttúruna séu mikilvæg í starfi þess. Einnig að þessi tengsl erru mikilvægur hluti af sjálfsmynd fólksins og á það sérstaklega við um hvernig fólkið sér tengsl sín við sjóinn. Einnig eru niðurstöður rannsóknarinnar þær að tilfinningar séu drifkraftur hvaladeilunnar, þó að andstæðar fylkingar þrættu fyrir það. Hvalur klukkan þrjú!!! Gleði og vonbrigði í íslenskri hvalaskoðun |