Fiskiróður |
Ágúst Árnason kennari fór haustið 1897 sem heimiliskennari að Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Í þorralok 1898 gerðist heimiliskennarinn formaður á einu af áraskipum Þorvaldar bónda og reri út frá Eyjafjallasandi. Skipið var sexæringur „áttróinn", þ.e. með barkaróðri. Skipshöfnin var 12 - 14 manns. Frásögn af því sem Ágúst kallaði „venjulegan" róður skráði hann skömmu áður en hann lést og birtist frásögnin í blaðinu Bliki árið 1963. |